Þess var minnst nú á dögunum að 30
ár eru liðin frá kvennadeginum. Mikil
umræða hefur verið um stöðu kvenna á vinnumarkaðinum. Auðvitað
hefur margt lagast
á 30 árum en enn er þó mikið misrétti á milli kynjanna. Konur
eru með lægri laun en
kallar of fá síður stöðuhækkanir en þeir. Ég skil ekki hvernig
stendur á því. En það er
víst staðreynd, konur eru annars flokks starfsmenn.
konan mín
er betri en ég í flestu.Ekki er hún bara fallegri
og töluvert meira
aðlaðandi en ég. Hún er líka gáfaðri.
Hún er skipulögð og vitur. Hún hefurdýpri
skilning á lífinu en ég. Hún þjónar frekar en að
láta þjóna sér. Það er einkenni
þroskaðra og kærleiksríkra manna.
HÚN er líka betri í að leysa vandamál en
ég. Hún æðrast ekki eins og ég.
Hún er þolinmóð og gefst ekki upp fyrr en í fulla
hnefana. Oft leysir hún mál sem ég var búin að gefast upp á. Hún
hefur líka peningavit
sem ég er laus við.
HÚN er laus við græðgi. Hún er betri í
samskiptum en ég. Hún hefur
kvenlegt innsæi sem ég ber mikla virðingu fyrir. Hún er auðmjúk
og blíð og tranar sér
ekki fram. Hún er aldrei með hávaða eða frekju. Hún vinnur í
hljóði. Hún er vandvirkari
og ábyrgari en ég og laus við þá fljótfærni sem er svo oft
einkennandi fyrir mig. Það
sem hún gerir það gerir hún vel.
Konan mín er smekklegri en ég. Hún fer
létt með að velja föt á mig. Ég á
ákaflega erfitt með að velja föt á hana. Ég geri reyndar fátt án
þess að bera það undir
hana. Ég verð að fá hennar álit á flestu. Ég held að hún vilji
mitt álit en það er yfirleitt
misskilningur.
Hún vill ræða hlutina og með því kemst hún
sjálf að niðurstöðu. konan mín
er dularfull vera sem kemur mér sífellt á óvart. Hún aftur á
móti les mig eins og opna
bók. Konan mín kæmist ágætlega af án mín í þessu lífi. En án
hennar ætti ég ekki séns
. Ég held að guð sé sáttari við hana en mig.
Jón Gnarr. Mbl.